Jörðin Grænavatn í Mývatnssveit.
Grænavatn er talin landnámsjörð. Nokkur gömul útihús standa enn uppi. Til að segja fyrir um gerð nýja hússins var fenginn norskmenntaður smiður, Páll Kristjánsson (1876-1968), sem verið hafði yfirsmiður Húsavíkurkirkju. Húsið er tvískipt, byggt fyrir tvær fjölskyldur og voru tveir smiðir fengnir til að smíða það eftir teikningum Páls. Smíðaði hvor smiður sinn helming hússins.
Frambærinn er hæð með portbyggðu risi með tveimur kvistum. Grunnflötur jarðhæðar er um 160 m2. Undir húsinu eru tveir aðskildir kjallarar. Húsið ber keim af sveitserstíl, en það er liststíll er kom fram um miðja 19. öld í timburhúsum og einkennist m.a. af miklu skrauti. Búið var í bænum fram yfir miðja síðustu öld, en hin síðari ár hefur húsið einkum verið notað sem geymsla.
Húsið hefur verið í vörslu Þjóðminjasafns frá árinu 2000. Unnið var að viðgerðum fyrstu tvö árin, en frekari framkvæmdir hafa legið niðri um sinn.