Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Fálkahúsið

Reykjavík Tjörnin

Fálkahúsið

Fálkahúsið, Hafnarstræti 1-3. Í aldaraðir urðu Íslendingar að veiða fálka og senda þá til Danakonunga, notuðu þá til gjafa, því þeir þóttu beztu veiðifálkar heims. Fálkahúsið á Bessastöðum var flutt til Reykjavíkur 1763. Því var komið fyrir á malarkambinum, þar sem Hafnarstræti er núna. Búfé, sem var notað til að fóðra fálkana var geymt í Geldinganesi. Eftir 1800 hætti eftirspurnin. Húsið var selt og var nýtt til verzlunar. N.C. Havsteen, kaupmaður, lét rífa það og reisa nýtt aðeins norðar árið 1868. Brydesverzlun eignaðist húsið á níunda áratugi 19. aldar og þá fékk það á sig núverandi mynd. Margar verzlanir hafa starfað í Fálkahúsinu síðan.

Myndasafn

Í grennd

Geldinganes
Geldinganes teygist flatt og lágt út í Kollafjörðinn fyrir norðan og norðaustan Gufunesið, sem það tengist með eiði, sem fór á kaf í flóði áður en það…
Reykjavík fleiri skoðunarverðir staðir
Aðalstræti er elsta gata Íslands. Hún er talin hafa verið sjávargata Víkurbænda frá suðurendanum niður í Grófarnaustið. Hún er talin hafa verið sjávar…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )