ESJUFJALLASKÁLI
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG ÍSLANDS
Fyrsti skálinn (braggi) var byggður 1951. Hann fauk 1966. Annar skáli var byggður 1977. Hann fauk 1999. Þriðji skálinn var byggður 2002 fyrir 6-12 manns í 701 m hæð yfir sjó. Skálinn stendur sunnan Tjaldmýrar í Skálabjörgum.
Skálinn er læstur en þeir, sem óska eftir næturdvöl fyrirfram, fá oftast jákvætt svar. Hafið samband við Vilhjálm Kjartansson í síma 893-0742.
GPS hnit: 64° 12.196′ 16° 25.463′.
Heimild: Vefur JÖRFI.