Einhyrningur (750m) er milli Tindfjalla og brúarinnar yfir Markarfljót á Emstruleið. Eins og nafnið bendir til er hann hyrndur og brattur en þó gengur. Á Einhyrningsflötum er leitarskáli Fljótshlíðinga.
Þar stóð sennilega bær Sighvats rauða, sem nam land ofan Deildarár á Einhyrningsmörk og byggði bæ sinn Bólstað, samkvæmt Landnámu, enda sáust þar merki um búsetu til skamms tíma.
Göngugarpar á leið úr Fljótsdal inn á leiðina um Mælifellssand eða Laugaveginn huga oftast nánar að þessu merkilega fjalli áður en lengra er haldið.