Brú er efsti bær í Jökuldal og einhver landstærsta jörð landsins, rétt vestan Jökulsár á Brú. Þar var bænhús til 1892, þegar kirkja var byggð, en hún var flutt að Eiríksstöðum 1912. Kláfferja var þar yfir Jöklu, þar til brúin var byggð 1953 og vegasamband komst á við Hrafnkelsdal.
Jeppavegir liggja vítt og breitt um hálendið frá Brú, m.a. vegur að Sænautavatni og upp á gamla þjóðveginn. Þá liggjur slóð beint áfram á Kverkfjallaveg. Syðri leiðin liggur um Laugarvalladal með Dimmugljúfrum og Hafrahvammagljúfrum að Hálslónsstíflu við Kárahnjúka og vestur um Brúaröræfi að Grágæsadal og brúnni á Kreppu.
Árið 1494 flúði allt fólkið pláguna og settist að í Dyngju í Arnardal í eitt ár og síðan næstu tvö árin í Netseli við Ánavatn. Þáverandi bóndi, Þorsteinn jökull, var mikill ættstólpi. Veðurstöð var sett upp að Brú árið 1957.