Mikið vatnsfall sem kemur upp á öræfum og tínist til úr ýmsum áttum, m.a. úr Hofsjökli. Enn fremur renna í ána vatnsmiklar bergvatnsár í óbyggðum. Allt þar til að áin var virkjuð ofan byggðar, var hún mjög lituð og lítt fýsileg til venjulegra stangaveiði. En þar sem mikill lax gekk í hana gripu menn til þess að húkka. Eftir virkjun hefur jökulaurinn síast að miklu leyti úr árvatninu og veiðiskapur er að mestu hefðbundinn síðan. Blanda er mjög gjöful og hefur gefiðum 1.000 laxa síðustu sumur.
Neðan Ennisflúða við Blönduós er veitt með fjórum stöngum á gömlum rótgrónum miðum, en ofan flúðanna, sem eru búnar laxastiga, hafa veiðimenn smám saman verið að finna lendur laxins þar efra. Hefur veiði frammi í Langadal því farið vaxandi síðustu ár. Blöndu er skipt í fjögur veiðisvæði. Svæði I er neðan Ennisflúða, II er frá Breiðavaðslæk að heimreið að Æsustöðum. III nær þaðan að útfalli Blönduvirkjunar og IV svæðið er þar fyrir framan.
Blanda er 8. lengsta á landsins 125 km.