Berufjarðarkirkja er í Djúpavogsprestakalli í Austfjarðaprófastsdæmi. Að bænum Berufirði við botn var kirkjustaður og fyrrum prestssetur og katólskar kirkjur þar voru helgaðar Ólafi helga Noregskonungi.
Á Berunesi var útkirkja og prestakallið var lagt niður 1907. Sóknin var lögð til Hofs og síðar Djúpavogs. Kirkjan, sem nú stendur, var byggð 1874.