Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Ferjan Baldur

Ferjan Baldur siglir yfir fjörðinn allt árið um kring

Ferjan  er oft kölluð brúin yfir til Vestfjarða. Ferjan siglir yfir fjörðinn allt árið um kring. Á sumrin siglir ferjan  daglega ein ferðir yfir Breiðafjörðinn frá Stykkishólmi til Brjánslækjar með viðkomu í Flatey. Það er því hægt að fara í dagsferð frá Stykkishólmi í eyju í 2,5 tíma eða jafnvel nýta sér eitthvað af gistimöguleikunum og njóta eyjunnar í lengri tíma. Fyrir þá sem ferðast með bíl, er mögulegt að senda bílinn á undan sér yfir fjörðinn á meðan stoppað er í Flatey. Þetta er mjög hentugur kostur fyrir þá sem eru t.d. að ferðast til Vestfjarða en vilja upplifa stemninguna og allt það sem Flatey hefur upp á að bjóða.

STYKKISHÓLMUR – FLATEY – BRJÁNSLÆKUR

ATH. það þarf að bóka fyrir farþega frá og til Flateyjar fyrirfram.

Baldur ferja

Myndasafn

Í grennd

Brjánslækur
Fornt höfuðból, kirkjustaður og löngum prestsetur við mynni Vatnsfjarðar á Barðaströnd. Þar var kirkja   helguð heilögum Gregoríusi í katólskum sið. B…
Flatey í Breiðafirði
Flatey er stærst Vestureyja. Alls heyra undir hana tæplega 40 eyjar og hólmar. Í Flatey var verslunarstaður frá miðöldum og löggiltur verslunarstaður …
Stykkishólmur, Ferðast og Fræðast
Stykkishólmur er oft kallaður höfuðstaður Snæfellsness. Bærinn stendur á innanverðu Snæfellsnesi, yzt á Þórsnesi. Byggðin stendur á klettaborgum með f…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )