Álftafjörður gengur suður úr Djúpi. Hann er um 12 km langur og 1½-2 km breiður og næstytztur fjarða sunnan Djúps. Tveir stuttir dalir ganga inn úr fjarðarbot ninum, Seljalandsdalur og Hattardalur.
Álftafjörður er einkum kunnur fyrir fjörugt athafnalíf, sem Norðmenn stóðu fyrir á síðustu áratugum 19. aldar og framan af hinni 20. Þeir höfðu þrjár bækistöðvar í Álftafirði, eina á Langeyri við Súðavík, aðra á Dverga- steinseyri og hina þriðju á Hattareyri. Voru þetta ýmist hval- eða síldarstöðvar, sem sköpuðu fjölbýli og fjörugt athafnalíf við fjörðinn á meðan þær voru starfræktar.
Mynd: Súðavík
Það er líka Alftafjördur á Austurlandi og Vesturlandi