Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Akrakirkja

Akrakirkja er í Borgarprestakalli í Borgarfjarðarprófastsdæmi. Hún var byggð árið 1900. Kirkja hefur  að Ökrum allt frá kristnitöku en fyrstu heimildir eru frá því um 1200. Katólskar kirkjur voru helgaðar Maríu guðsmóður og prestur sat þar fram undir siðaskipti. Akrar tilheyrðu Hítarnesþingum, sem voru lögð niður 1880 og sóknin lögð til Staðarhrauns og síðan til Borgar 1950. Tveim árum síðar aftur til Staðarhrauns og að nýju til Borgar 1970.

Hjörseyjarkirkja var lögð niður árið 1896 og sóknirnar sameinaðar. Eignir hennar voru færðar til Akrakirkju. Eigendur kirkjunnar afhentu söfnuðinum kirkjuna sama ár til eignar og umsjár. Árið 1899 var kirkjan endurbyggð og stækkuð. Á árunum 1986-87 voru gerðar miklar endurbætur á kirkjunni. Hún er timburkirkja, klædd bárujárni og grunnurinn er hlaðinn. Veggir kirkjunnar að innan eru skreyttir með marmaramálningu og hvelfingin yfir kór er blámáluð.

Akrar eru á sjávarbakkanum inni af Akranesi. Samkvæmt Egilssögu átti Skalla-Grímur Kveldúlfsson þar bú og sáðlönd (minjar um fornt akurgerði?). Hvalseyjar eru fyrir landi Akraóss, skammt norðar.

Myndasafn

Í grennd

Akranes
Akranes fékk kaupstaðarréttindi árið 1942. Bærinn á samnefndu nesi milli Hvalfjarðar og Leirárvoga. Í Landnámu segir, að Írar hafi numið þar land og …
Kirkjur á Íslandi
Það er erfitt að draga skörp landfræðileg skil milli kirkna, kirkjustaða og sögu kristninnar á milli. Á þessum vef fer skiptingin ekki eftir prófastsd…
Sögustaðir Vesturlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Borgarfjörður Snæfellsnes Dalir Landshlutar Ferðavísir…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )