Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Kirkjur á Íslandi

Skálholt

Það er erfitt að draga skörp landfræðileg skil milli kirkna, kirkjustaða og sögu kristninnar á milli. Á þessum vef fer skiptingin ekki eftir prófastsdæmum, heldur lenda þau víðast báðum megin línanna, sem eru dregnar á korti ferðavísisins, þannig að samræmis sé gætt á öllum vefunum. Margar kirkjur birtast líka undir sögustöðum á ferðavísinum, svo að styttra sé að sækja þær fyrir þá, sem vilja ekki missa af neinu á viðkomandi svæði. Kirkjur á vefnum orðnar yfir 400 talsins og vafalaust verður bætt við fjölda þeirra og upplýsingum um aðrar í næstu framtíð eftir því sem þær berast frá prófastsdæmunum.

Prestar fyrri alda urðu tíðast að leggja á sig meira harðræði en starfsbræður þeirra og systur á okkar dögum til að sinna skyldum sínum við afskekkt byggðarlög eins og aragrúi frásagna er til um. Brauð voru mismunandi stór og feit og fjöldi kirkna innan þeirra var misjafn. Íslenzku þjóðfélagi og samgöngum hefur fleygt svo fram á 20. öldinni, að kirkjum hefur stöðugt fækkað og fækkar samt hægar en tilefni gáfust og gefast til.

Það er engin nýjung, að söfnuðir séu misánægðir eða óánægðir með presta sína og stundum sverfi til stáls. Slíkt hefur gerzt í gegnum aldirnar, þótt forfeður okkar væru umburðarlyndari við guðsmenn sína en varð, þegar nær dró okkar dögum. Í hugarskoti fólksins skipti ef til vill ekki höfuðmáli, hvernig guðsorðið var framreitt í kirkjunum, heldur kirkjusóknin sjálf á sunnudögum, að hitta vini og vandamenn og eiga frjálsar stundir eftir messu til að ræða málin og heimsækja bæina á leiðina heim og fá sér í staupinu, ef færi gafst.

Hér eru listar yfir kirkjur í hverjum landshluta.

Kirkjur landsins eftir landshlutum í stafrósröð

Myndasafn

Í grennd

Trúfélög á Íslandi
Kirkjan og þjóðin í 1000 ár Árið 1000, þegar kristni var lögtekin, bjó ein þjóð í landinu. Landnámsmenn voru mismunandi að uppruna, en flestir komu f…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )