Þessi á er þriggja stanga sjóbleikju- og sjóbirtingsá. Veiðistaðir og umhverfi árinnar er fallegt og fjölbreytt. Víða er land að henni kjarri vaxið og hún endar leið sína í Jökulsá, þar sem vænlegt er til veiði í tæru skilunum. Einugis er veitt með flugu í ánni. Veiðitakmarkanir og veiðikvóti eru í ánni og er veiðimönnum gert að sleppa aftur veiddum fiskum. Veiðitíminn hefst um miðjan júní, þegar bleikjan er farin að ganga og síðan kemur sjóbirtingurinn, þegar nær dregur hausti.