Fnjóská er vatnsmikil bergvatnsá sem fellur í suðaustanverðan Eyjafjörð. Hún er veidd með átta stöngum á aðallaxasvæðinu og nokkrar stangir eru að auki á bleikjusvæðum efst í ánni. Fnjóská þykir afar falleg og rennur m.a. um skóglendi Vaglaskógar. Hún fellur til sjávar skammt frá Laufási og er óshólmasvæði hennar rómað fyrir fegurð og fuglalíf. Laxveiði er nokkur í ánni, en afar sveiflukennd. Á góðu sumri geta veiðst um 400 laxar, en oft er aflinn miklu minni.
Á undanförnum árum hafa veiðst um 250-400 laxar á ári sem þykir í lagi. Góð bleikjuveiði er samhliða laxveiðinni. Stangaveiðifélagið Flúðir á Akureyri hefur haft ána á leigu og hefur leigt stangaveiðiréttindin óslitið frá 1969 af Veiðifélagi Fnjóskár. Veiðihús eru staðsett við Flúðasel.
Fnjósá er 9. lengsta á landsins 117 km.