Hafravatn er 1,02 km² stöðuvatn í 76 m hæð yfir sjó innan marka Mosfellssveitar, skammt sunnan Reykja. Mesta dýpi þess er 28 m. Seljadalsá rennur í það að austan en Úlfarsfellsá (Korpa) úr því til vesturs. Við vatnið eru rústir gamallar fjárréttar, sem voru notaðar fram á 8. áratuginn, og fjöldi sumarbústaða. Mikið er af smárri bleikju í vatninu og reitingur af urriða, sem er snöggtum vænni. Lax kemst og í vatnið um Korpu, en það veiðast ekki margir slíkir fiskar í vatninu þó mörgum þyki gaman að eiga vonina. Vegalengdin frá Reykjavík er um 14 km.