Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Staðarkirkja á Staðarstað

Staðarkirkja er í Staðarstaðarprestakalli í Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi. Staðarstaður á Ölduhrygg  er prestsetur og kirkjustaður frá fornu fari. Katólskar kirkjur staðarins voru helgaðar Maríu guðsmóður og í sókninni voru nokkur bænhús og kirkjur, bæði í Syðri-Görðum og Gaul, fram um siðaskipti.

Fyrsta útkirkjan varð kirkjan á Búðum, vestasta bæ í Staðarsveit. Hún var byggð 1712. Kirkjan á Hellnum bættist við 1917. Kirkjan, sem nú stendur á Staðarstað, er steinkirkja, byggð1942-1945 með forkirkju og turni. Hún tekur u.þ.b. 100 manns í sæti. Altaristaflan er máluð á kórgaflinn. Hún minnir óneitanlega á söguna af Galdra-Lofti.

Myndasafn

Í grennd

Kirkjur á Íslandi
Það er erfitt að draga skörp landfræðileg skil milli kirkna, kirkjustaða og sögu kristninnar á milli. Á þessum vef fer skiptingin ekki eftir prófastsd…
Staðarstaður
Staðarstaður er kirkjustaður frá fornu fari og prestsetur á Ölduhrygg í Staðarsveit á sunnanverðu  . Á katólskum tíma voru kirkjurnar þar helgaðar Mar…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )