Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Vatnamót

Vatnamót er stórt vatnasvæði í Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu, þar sem margar ár og sprænur  og flæmast um hraun og sanda. Nokkrar ánna, sem til Vatnamóta falla, eru Breiðbalakvísl, Fossálar og Skaftá.

Þetta er einstætt vatnasvæði er 8 km sunnan þjóðvegarins. Útsýni til fjalla og jökla frá þessu svæði er tignarlegt. Stundum veiðast stærstu sjóbirtingarnir í Vatnamótum. Það er ekki úr vegi að hafa það í huga, að landslagið á þessu svæði breyttist verulega við Skaftárelda árið 1783. Vatnamót eru veidd með fimm stöngum.
Vegalengdin frá Reykjavík er 290 km og 12 km frá Klaustri.

Myndasafn

Í grend

Kirkjubæjarklaustur
Kirkjubæjarklaustur á Síðu hét áður Kirkjubær og var þar löngum stórbýlt og má segja að svo sé enn. Kauptún hefur myndazt þar og nefnt í daglegu tali …
Veiði Suðurland
Stangveiði á Suðurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og veiðivötn. Laxveiði Suðurlandi Brúará – Hagós Brúará – …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )