Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Úlfsvatn

Úlfsvatn

Úlfsvatn er á Arnarvatnsheiði. Það er 3,85 km², fremur grunnt og í 434 m hæð yfir sjó. Það er annað stærsta vatnið á heiðinni og í það rennur Gilsbakkaá úr nokkrum vötnum alllangt norðuraf. Útfallið, Úlfsvatnsá, rennur til Grunnuvatna. Vatnið er gjöfult á veiði, bæði bleikju og urriða, sem getur orðið allvænn, allt upp í 8 pund. Fyrrum voru netaveiðar stundaðar af krafti í vatninu. Við norðausturhorn vatnsins er skáli, sem getur hýst allt að 20 manns. Jeppaslóð liggur sunnan að vatninu og skálanum. Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 200 km.

Myndasafn

Í grennd

Arnarvatnsheiði og Tvídægra veiðivötn
Arnarvatnsheiði og Tvídægra eru heiðarflæmi, sem þekja norðvestuhluta meginhálendisins. Þar eru vötnin sögð óteljandi líkt og hólarnir í Vatnsdal og e…
Hálendisveiði
Hálendisveiði skiptist í 5 veiðisvæði. Þannig er best að velja svæði og síðan hvernig farið er þangað hér að neðan. Þessi svæði eru Arnarvatnsheiði…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )