Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Tröllatunguheiði

Tröllatunguheiði er 400 m hár, sumarfær fjallvegur milli Geiradals í Austur-Barðastrandarsýslu og  Steingrímsfjarðar í Strandasýslu. Heiðin er þakin grýttum melum, mýrum og vötnum. Stærstu vötnin eru Miðheiðarvatn og Langavatn.

Miðheiðarborg er mest áberandi á leiðinni og útsýni af háheiðinni er fagurt á góðum degi. Arnkötludalur er vestan heiðarinnar. Þar eru rústir tveggja eyðibýla.

Vegalendin milli Gautadals í Geiradal og Tröllatungu í Tungusveit við Steingrímsfjörð er u.þ.b. 23 km.

 

Myndasafn

Í grennd

Barðaströnd
Barðaströnd er heiti á strandlengju á sunnanverðum Vestfjörðum að Breiðafirði á milli Vatnsfjarðar og Bjarkarlundar. Flóki Vilgerðarson nam þar lan…
Steingrímsfjörður
Steingrímsfjörður er mestur fjarða í Strandasýslu, um 28 km langur og nær 7 km breiður yzt milli  Drangsnes og Grindar. Hann gengur fyrst til vesturs …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )