Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Tjaldstæðið Þingvellir

Þingvellir

Leyfilegt er að tjalda á tveimur svæðum innan þjóðgarðsins á Þingvöllum. Á Leirum í
kringum þjónustumiðstöð þjóðgarðsins og í Vatnskoti við Þingvallavatn.

Sömu reglur um umgengni gilda á tjaldsvæðum þjóðgarðsins og hvarvetna innan hans. Tjaldgestum skal þó sérstaklega bent á að sýna tillitsemi og virða næturró með því að ganga hljóðlega um á milli kl. 24:00 og 08:00.

Á Leirunum skiptast tjaldsvæðin í fjóra hluta sem kallaðir eru Fagrabrekka, Syðri-Leirar, Hvannabrekka og Nyrðri-Leirar. Tjöld eru eingöngu heimil í Fögrubrekku og Hvannabrekku en gott rými og aðstaða er á Syðri- og Nyrðri-Leirum fyrir húsbíla og fellihýsi.

Tjaldsvæðið í Vatnskoti er við gamalt eyðibýli á bökkum Þingvallavatns. Tjaldsvæðið í Vatnskoti er einungis ætlað tjöldum og er öll umferð bifreiða bönnuð um svæðið.

Sumaropnun tjaldstæða (01.06. – 1.10):
Tjaldstæðin á Leirum og við Vatnskot er opin.

Vetraropnun tjaldstæða:
Heimilt er að nýta bílastæði við Þjónustumiðstöð og Fögrubrekku til að gista í yfir nótt og nýta þá aðstöðu við Nyrðri-Leirar sem hægt er.

Gistigjöld:

Fullorðnir (18-66 ára) kr. 1.300 fyrir hverja nótt.
b) Eldri borgarar (67 ára og eldri) og örorkulífeyrisþegar kr. 650 fyrir hverja nótt..
c) Rafmagn (eingöngu Nyrðri-Leirar) kr. 900 fyrir hverja nótt.
Ókeypis fyrir börn (17 ára og yngri). Ef greitt er fyrir þrjár nætur, fæst sú fjórða frí og síðan önnur hver upp frá því. Hópar (10 eða fleiri) fá 15% afslátt sé gert upp sameiginlega.

Gistigjald skal greiða fyrirfram í þjónustumiðstöð. Tjaldsvæðin eru slegin vikulega og snyrtingar þrifnar daglega og oftar ef þurfa þykir.

Sorp er látið óflokkað í sorptunnur en tjaldgestum er bent á að sérstakar tunnur eru ætlaðar undir einnota drykkjarílát og notuð grillkol.

Daglegt eftirlit með tjaldsvæðunum er i höndum landvarða sem einnig sinna næturvörslu um helgar. Ef eitthvað ber út af er gestum vinsamlega bent á að snúa sér til þeirra. Einnig skal landvörðum gert aðvart ef misbrestur á umgengni fólks veldur ónæði.

Myndasafn

Í grennd

Gönguleiðir á Þingvöllum
Aðalaðkomuleiðir til Þingvalla voru Kárastaðastígur um Langastíg niður í Almannagjá, Gjábakkavegur niður á Klukkustíg að austan, Botnsheiðarvegur og G…
Þingvallavatn
Þingvallavatn er stærst stöðuvatn á Íslandi, 83,7 km² og dýpst 114m á Sandeyjardýpi 4.dýpsta vatn landsins. Dýpsti punkturinn er u.þ.b. 13m undir sjáv…
Þingvellir
Þjóðgarðurinn Þingvellir Sögufrægasti staður landsins er í hjarta Þingvallasveitar. Þar ber Almannagjá hæst og þingið forna við Öxará. Þingvallaþjóðg…
Þingvellir eydibýli í Þingvallasveit
Arnarfell var hjáleiga frá Þingvöllum, sem hafði afnot af fellinu og spildu norðan þess við vatnið og var  góð veiðijörð. Enn þá sést móa fyrir grjótg…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )