Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Tjaldstæðið Flókalundur

Flokalundur

Vatnsfjörður er þekktur úr sögunni vegna landgöngu Hrafna-Flóka, sem gaf landinu nafnið, sem festist við það.  Skammt ofan við Brjánslæk er Surtarbrandsgil, friðlýst náttúruvætti. Þar eru steingerðar plöntuleifar frá hlýskeiðum ísaldar. Bjarni Pálsson og Eggert Ólafsson veittu staðnum athygli og lýstu honum um miðbik 18. aldar.

Hellulaug er undir klettum niðri í fjöru neðan eyðibýlisins Hellu, rétt við Flókalund. Hún er grjóthlaðin og steypt, um 4 x 3m og 50-70 sm djúp. Vatnið rennur úr borholu uppi á klettinum á svipuðum stað og gamla Hellulaugin var. Vatnið í lauginni er 38°C og sýrustigið (pH) 9,96. Gestir eru beðnir um að ganga vel um laugina.

Myndasafn

Í grennd

Ferðavísir, ferðast og fræðast
Skipulag ferðar Ein leið við að skipuleggja ferðalag um landið okkar er að velja þann landshluta sem fyrst skal heimsækja. Þaðan er síðan hægt að …
Flókalundur Bránslækur
Flókalundur er í Vatnsfirði á Barðaströnd. Það er óhætt að fullyrða, að þetta svæði sé meðal hinna allrafegurstu á landinu og landið allt víði vaxið. …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )