Þveitin er í Nesjahreppi í A.-Skaftafellssýslu, skammt norðan Hafnar í Hornafirði. Það er 0,91 km², mjög grunnt og aðeins í 2 m hæð yfir sjó. Myllulækur og Skrápslækur renna til þess en Þveitarlækur úr því til Hornafjarðarfljóts. Hringvegurinn nr. 1 liggur á eystri vatnsbakkanum. Umhverfið er grösugt og margbreytilegt. Í og á vatninu er hægt að skoða skemmtilegt fuglalíf. Allmikið magn af smábleikju er í vatninu, eingöngu vatnableikja, þrátt fyrir að sjógenginn fiskur eigi greiða leið upp í það. Því miður er netaveiði ekki stunduð í vatninu.
Til eru sagnir um að nykur hafi sést við vatnið á myrkum haustkvöldum. Setuliðið á Stokknesi hafði vatnið árum saman á leigu.
Leyfilegt er að veiða til kl. 22.00.
Veiðitímabil stendur yfir frá 1.apríl til 30. september.
Allt löglegt agn: Fluga, maðkur og spónn.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:
Sigurður Sigfinnsson á Stórulág hefur umsjón með vatninu. Stórulág er staðsett um 2 km. norður af vatninu. s: 478-1353.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 440 km og frá Höfn 10 km.