Þelamörk er í austanverðurm Hörgárdal, niður frá Bægisá. Þjóðvegurinn liggur um Moldhaugnaháls, sem er austan hennar, og þaðan hækkar landslægið upp í Vindheimajökul (1454m). Stallarnir í hlíðinni eru allt að 100 m ofan dalbotnsins og nyrzti hluti þeirra heitir Laugalandsheiði.
Laugaland er forn kirkjustaður og þar er jarðhiti eins og nafnið bendir til. Á árunum 1943-45 var byggð sundlaug við túnfótinn og heimavistarskólinn (Þelamerkurskóli) þar var opnaður 1965.
Hann hefur verið notaður sem sumarhótel í áratugi. Stór skógræktargirðing var sett upp í landi Vagla á Þelamörk. Þaðan fá Akureyringar neyzluvatn sitt.