Svínaskálastekkur er eyðibýli í Helgustaðahreppi í Reyðarfirði. Árið 1904 byggði Ásgeir Ásgeirsson frá
Ísafirði þar hvalstöð, sem var við lýði í átta ár. Hvalskurðinn önnuðust Norðmenn. C.E. Evensen var framkvæmdastjóri stöðvarinnar. Heimamenn súrsuðu hvalkjöt og notuðu það einnig til skepnufóðurs. Talsverð hákarlaveiði var í firðinum, þar sem hvalveiðararnir sökktu beinagrindum hvalanna á útleið. Síðustu ár stöðvarinnar voru hvalirnir malaðir í gúanó. Richard Beck (1897-1979), prófessor í Kanada, fæddist að Svínaskálastekk. Hann skildi eftir mikið safn ritverka og varð heiðursdoktor við Háskóla Íslands árið 1961.
Er ekki bara best að ferðast og fræðast um Ísland sem er í boði nat.is !!!
Eins og sjá hér að neðan, tengdar færslur er nat.is að reyna að halda jafnframt um gamlar og nýjar heimildir: