Súgandafjörður gengur inn milli Galtar og Sauðaness. Hann er nyrzti fjörður V-Ísafjarðarsýslu og þeirra minnstur, um 13 km langur og um 4 km breiður í mynni. Súgandafjörður er fremur grunnur, einkum innan við kauptúnið Suðureyri. Allhá fjöll eru með firðinum og hlíðar brattar. Þó eru þær víða grónar og skógur allmikill í norðurhlíðum. Undirlendi er lítið nema Botnsdalur inn af fjarðarbotninum. Snjóflóðahætta er mikil Jarðhiti er í svokallaðri Lásvík og hjá Laugum en þaðan hefur verið lögð hitaveita til Suðureyrar.
Inni af botni Súgandafjarðar liggur vegur yfir Botnsheiði til Ísafjarðar, um 500 m.y.s. Hann er sjaldnast fær á veturna. Árið 1995 voru opnuð til umferðar jarðgöng, sem tengja Flateyri, Suðureyri og Ísafjörð, þannig að nú er hægt að tryggja vetrarsamgöngur milli þessara staða. Surtarbrandslög hafa fundizt að Botni í Súgandafirði og hafa verið unnin kol úr þeim oftar en einu sinni svo vitað sé, síðast á árunum 1940-1942. Sundlaug með volgu laugavatni hefur verið gerð fyrir innan Suðureyrarkauptún. Hún var fyrst notuð árið 1933 og kennt í henni á hverju ári síðan. Uppsprettan er 40°C
Samkvæmt því sem segir í Landnámu var það Hallvarður súgandi sem nam fjörðinn. Hann hafði barist við Harald konung hárfagra í Hafursfjarðarorrustu en hélt síðan til Íslands og nam Súgandafjörð og Skálavík til Stiga.