Stórurð (Hrafnabjargaurð) er í Urðardal í Hjaltastaðaþinghá. Hún er hluti jarðarinnar Hrafnabjarga. Hún er meðal stórfenglegustu náttúrufyrirbæra Austurlands. Talið er, að stóru björgin séu bergfyllur, sem féllu á skriðjökul, sem flutti þær fram dalinn og síðan bráðnað undan þeim. Þarna eru sléttir grasbalar og djúpar tjarnir milli bjarganna, sem eru á hæð við fjölbýlishús. Dyrfjöllin gnæfa yfir, tignarleg eins og frá öðrum sjónarhornum. Þarna er snjóþungt, þannig að snemmsumars má búast við talsverðum snjó. Bezt er að halda sig við merktar leiðir í Stórurð í þoku, því þar er villugjarnt við slík skilyrði. Merkt leið liggur frá Stórurð til þjóðvegarins í Ósfjalli, önnur upp á Vatnsskarð og tvær til Borgarfjarðar eystri. Önnur liggur upp urðina og um Eiríksdalsvarp og niður að Hólalandi innst í Borgarfirði eystri, en hin yfir Mjóadalsvarp og um Grjótdalsvarp niður í Bakkagerði. Ganga um þessar slóðir er einn hápunktanna í gönguferðum um Víknaslóðir.