Stóra-Viðarvatn eða Viðarvatn er í Svalbarðshreppi á austanverðri Melrakkasléttu. Það er 2,5 km², dýpst 20 m og 151 m yfir sjávarmáli. Víðinesá rennur frá því og fellur til sjávar í Viðarvík, sem er syðri hluti Kollavíkur.
Þjóðvegur 85 er skammt austan vatnsins og sunnan þess er vegur nr. 867, sem liggur yfir þvera Sléttuna. Akfært er að vatninu og eitthvað meðfram því. Vænn silungur er í vatninu, urriði, bleikja og líklega murta. Engin netveiði er stunduð í vatninu.