Móbergsfjall á Reykjanesskaga, suðaustur af Höfnum. Stapafell er gert nær einvörðungu úr bólstrabergi. Olívín, einn aðalfrumsteinn í basalti, hefur sést neðst í bólstrunum á meðan þeir voru óstorknaðir.
Skammt austur af Stapafelli var fyrr á öldum alfaraleið frá Grindavík til verstöðva á Rosmhvalanesi. Sést þar enn marka fyrir slóðum. Mikið grjótnám er í Stapafelli og minnkar fjallið ár frá ári. Bandaríkjamenn fluttu mestan hluta fjallsins í undirstöður flugvallarins á Rosmhvalanesi árið 1951.