Stafholt í Borgarfirði
Í Egilssögu er getið um liðveizlubeiðni Steinars Önundarsonar við Einar goðorðsmann gegn Þorsteini á Borg. Snorri Sturluson bjó í þrjú ár að Stafholti og gifti þaðan dóttur sína Þórdísi Þorvaldi Vatnsfirðingi. Sonur Snorra, Órækja, bjó þar, unz frændi hans, Sturla Sighvatsson, hrakti hann úr landi. Hann kom til baka að þremur árum liðnum eftir að Sturla var fallinn en var óvinsæll í héraðinu. Árið eftir að Snorri Sturluson var drepinn í Reykholti (1241) hröktu Kolbeinn ungi og Gizzur Þorvaldsson hann úr landi og hann kom ekki heim á ný.
Í Kirkjusögu Finns Jónssonar er sagt frá sögnum um klaustur að Stafholti. Stafholtskirkja átti gífurlegar eignir, jarðir og ítök.