Þessi veiðivötn eru í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Hagavatn er 1,3 km², dýpst 8 m og í 19 m hæð yfir sjó. Úr vatninu rennur til Staðarár. Talsvert úrval fisks er í vatninu, Sjóbleikja, 1-3 pund, sjóbirtingur, 2-4 pund og lax af ýmsum stærðum. Tvær stengur eru leyfðar í ánni á dag og fleiri í vatninu. Sagt er að nykur hafi haft aðsetur í tjörn við Hagavatn, en hann hefur ekki sést lengi.
Vegalengdin frá Reykjavík er um 200 km og 85 frá Borgarnesi.