Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Sólheimajökull

Sólheimajökull

Sólheimajökull skríður niður úr Mýrdalsjökli suðvestanverðum. Hann er u.þ.b. 8 km langur og 1-2 km  breiður. Jökulsá á Sólheimasandi, stundum kölluð Fúlakvísl vegna brennisteinsfnyks, kemur undan honum. Síðast hljóp jökullinn fram á tíunda áratugunum og gægðist upp fyrir Jökulhaus, en hann hefur gengið mikið fram á síðustu öldum.

Jökulhaus hvarf í kringum 1820 en fór að koma í ljós aftur eftir 1930. Lengst náði jökullinn fram í upphafi 19. aldar eins og jökugarðar niðri á sandinum sýna glöggt. Mest hopaði jökullinn 1930-64 (u.þ.b. 900 m). Fyrrum stíflaði jökullinn þverdali og þar mynduðust jökullón. Stærst var lónið í Jökulsárgili á milli Hvítmögu og Skógarfjalls og hlaup voru tíð. Þau voru hættuleg ferðamönnum og stóðu stundum í marga daga.

Gönguleiðin frá bílastæðinu í grennd við jökulinn liggur um jökulöldurnar fyrir framan jökultunguna. Gæta þarf varúðar næst jöklinum, því þar myndast stundum kviksandur, sem fólk gegur sokkið djúpt í.

Fjallaleiðsögumenn hafa boðið ferðir upp á skriðjökulinn og búa þátttakendur öllum nauðsynlegum búnaði öðrum en fatnaði.

Gæta þarf fyllstu varúðar fari fólk inn í íshella, sem myndast stundum í jaðrinum, því þar er stöðug hætta á hruni. Ísinn er á stöðugri hreyfingu!

Myndasafn

Í grennd

Jöklar
Jöklar Íslands Jöklar landsins þekja rúmlega 11% af heildarfleti þess. Hinir stærstu eru á sunnanverðu landinu eða í miðju þess. Helzta ástæðan er sú…
Skóga og Sólheimasandur
Skógasandur, er framburður hlaupa frá Sólheimajökli milli Skógaár og Jökulsár á Sólheimasandi, sem sýnir okkur glöggt að það er mögulegt að gera gráu…
Skógar
Austustu bæir undir Eyjafjöllum eru Eystri- og Ytri-Skógar. Þar hóf héraðsskóli Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga starfsemi 1949. Þar er sundhöll og s…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )