Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Skriðdalur

Skriðdalur nær frá Völlum á Héraði að Breiðdalsheiði og Öxi í suðri. Þar sem hann er breiðastur, klofnar   hann um Þingmúlann í Norður- og Suðurdal. Skriðuvatn er í Suðurdal og afrennsli þess er Múlaá, en Geitdalsá fellur úr Norðurdal, sem hét Geitdalur áður. Þegar árnar hafa sameinazt er Grímsá komin til skjalanna. Grímsárvirkjun er í landi Stóra-Sandfells. Þingmúli er kirkjustaður sveitarinnar, en þar var áður hinn forni þingstaður, sem Múlaþing heitir eftir. Núverandi þingstaður sveitarinnar er að Arnhólsstöðum, gegnt Múlastað, en þar er samkomuhúsið. Þjóðvegur #1 liggur um Suðurdal til Breiðdals.

Árið 1995 fannst fornmannsgröf rétt sunnan Þórisár í Skriðdal, spölkorn ofan við þjóðveginn. Þetta reyndist eitthvert merkasta kuml frá landnámsöld, sem fundizt hefur hér á landi. Ríkur höfðingi hefur veið heygður þar ásamt hesti sínum, vopnum og skartgripum. Grautarskál, sem fannst meðal munanna, vakti mikla athygli. Hún varð til þess, að sumir eigna kumlið landnámsmanninum Graut-Atla. Aðrir gizka á Ævar hinn forna. Kumlinu var komið fyrir með upphaflegum ummerkjum í Minjasafni Austurlands á Egilsstöðum.

Myndasafn

Í grennd

Egilsstaðir og Fellabær
Egilsstaðir og Fellabær eru á Fljótsdalshéraði, en þar er eitthvert veðursælasta svæði landsins, minnir helzt á meginlandsloftslag. Egilsstaðahrepp…
Skriðuvatn
Skriðuvatn er í Skriðdalshreppi. Það er 1,25 km², dýpst 10 m og er í 155 m hæð yfir sjó. Öxará og  Vatnsdalsá renna til þess og úr því fellur Múlaá, s…
Sögustaðir Austurlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landsins Aðalból Álfaborg Álfatrú Álftafjörður Ás í Fellum Ás í Fellum Áskirkja …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )