Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Sauðahús í Álftaveri

Húsagerð Íslendinga til forna bar svip af því efni sem tiltækt var á hverjum stað á hverjum tíma. Í ÁlfSauðahús í Álftaveritaveri og Meðallandi vex mikið af melgresi, og er vestara sauðahúsið í Álftaveri dæmi um nýtingu þess til húsagerðar. Þar er melur notaður á svipaðan hátt og hrís í árefti annarra þekktra torfhúsa. Melur var gjarnan lagður í þremur lögum á húsþök. Neðsta lagið var lagt upp og ofan eftir þekjunni og melknippin látin skarast. Næsta lag var lagt þvert ofan á og það efsta lá eins og það neðsta. Efst var torfþekja. Grind eldra hússins hefur einnig þá sérstöðu að þak sperrur hvíla á steinum sem ganga út úr grjótveggjunum í sylluhæð.

Skammt frá sauðahúsunum er rúst fornbýlisins Kúabótar, og þegar unnið var að uppgreftri þar árið 1972, varð mönnum ljóst að notkun mels í húsþök væri staðbundin og nauðsynlegt að varðveita dæmi um hús slíkrar gerðar. Húsin hafa verið í umsjá Þjóðminjasafns síðan 1974 og ráðist var í endurbyggingu þeirra árið 1976.

Myndasafn

Í grennd

Álftaver
Álftaver er lítið og flatlent landsvæði austan Mýrdalssands og sunnan Skálmar (á leið til Kúðafljóts).    Ofan byggðar eru þyrpingar gervigíga, sem ha…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )