Sandvatn, 3 km², er á Gautlandsheiði, Skútustaðahreppi í S.-Þingeyjarsýslu. Það er allt fremur grunnt, dýpst 4 m. Hæð þess yfir sjávarmáli er 381 m. Aðrennsli þess er lítið og frárennslið er Bjarnastaðalækur. Veiðin er nær eingöngu ½-3 punda bleikja.