Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Rípurkirkja

Rípukirkja er í Hólaprestakalli í Skagafjarðarprófastsdæmi. Ríp er bær og kirkjustaður í Hegranesi. Árið  1907 var Rípurprestakall lagt niður og sóknin lögð til Viðvíkur, sem var lengi útkirkja Rípur, og 1952 til Sauðárkróks.

Flutningur sóknarinnar til Sauðárkróks varð aldrei að veruleika og árið 1960 var hún lögð til Hóla. Katólskar kirkjur á Ríp voru helgaðar Andrési postula.

Steinhlaðna kirkjan, sem nú stendur, var byggð 1924. Efri altaristöfluna, sem sýnir skírn Jesú, málaði Guðmundur Einarsson frá Miðdal en aðaltaflan er frá 1777. Skírnarsárinn og númerataflan eru úr ljósu birki. Sigurður Jónsson frá Hróarsdal gerði hvort tveggja og gaf kirkjunni.

Kirkjan á þrjá gamla korpóraldúka með útsaumi. Þrjár fjögurra arma ljósastikur og sex vegglampar, keypt erlendis, prýða kirkjuna.

Myndasafn

Í grennd

Kirkjur á hringveginum
Kirkjur á Hringveginum á 6 Dögum Fyrstu árin eftir að hringvegurinn var opnaður (1974) kepptist fólk um að setja hraðamet eða aka aftur á bak allan h…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )