Reyðarfjarðarkirkja er í Eskifjarðarprestakalli í Austfjarðaprófastsdæmi. Hún var byggð 1910 og var á 8. áratugnum. Minnismerki um drukknaða sjómenn stendur á lóð hennar. Prestar hafa setið á Eskifirði síðan 1930 en áður á Hólmum.
Árið 1880 sætti stór hluti sóknarbarna sig ekki við veitingu prestsembættisins og stofnaði fyrsta fríkirkjustöfnuðinn á landinu. Þess sjást greinileg merki í þorpinu, því að þar eru tveir kirkjugarðar, annar vígður fríkirkjusöfnuðinum.