Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Ölfusárósar og Hraun í Ölfusi

Veiði á Íslandi

Ölfusá er ein laxauðugasta veiðiá landsins og jafnframt er þar mikið af sjóbirtingi og bleikju. Neðst við Ölfusá er er bærinn Hraun, sem veiðistaðurinn er nefndur eftir.

Við ósa Ölfusá er jafnframt kjörinn veiðistaður sem er skammt frá veitingastaðnum Hafið Bláa.

Á Hrauni tóku sunnlendingar af lífi Lénarð fógeta. Eru þess fleiri dæmi, að þeir höfðu þann hátt á sem öruggastur var til að losna við valdsmenn, sem yfirgang sýndu, en í dag eru menn með veiðistöngina eina að vopni, þar sem Hraun er eftirsóttur staður til silungsveiða, en þar hefst veiðitímabilið 1. apríl.

Á bökkum Ölfusár er dys ein, en í henni eru taldar vera jarðneskar leifar Lénharðs fógeta á Bessastöðum.

Í Öldinni okkar árið 1502 segir meðal annars um dráp Lénharðs fógeta: „Torfi Jónsson, sýslumaður í Klofa á Landi, hefur látið drepa Lénharð, fógeta á Bessastöðum. Fór Torfi að fógetanum, er hann var staddur á bæ í Ölfusi, rauf á honum húsin og felldi hann.“ „Lénharður var staddur að Hrauni í Ölfusi, er Torfi kom með menn sína, og bjóst um í húsum inni, þegar hann varð ófriðarins var. Varð þeim Torfa ekki greitt inngöngu, því að piltur úr liði Lénharðs, Eysteinn Brandsson að nafni, varði dyrnar svo fimlega, að þeim vannst ekki á, nema hætta sér undir vopn hans. Torfi greip þá til þess ráðs að láta rjúfa þekjuna á bæjarhúsunum, og féll fógeti eftir skamma viðureign, er menn Torfa voru inn komnir.

Hraun í Ölfusi er u.þ.b. 50 km frá Reykjavík.

Myndasafn

Í grennd

Golklúbbur Þorlákshafnar
815 Þorláshöfn Sími: 483-3009 golfthor@simnet.is www.golfthor.is 18 holur, sandvöllur, par 72. Þorlákshöfn er kauptún á Hafnarnesi, vestan …
Kaldaðarnes
Kaldaðarnes er og var stórbýli austan Ölfusár í Flóa. Ein elzta heimild um staðinn er ferjumáldagi Kaldaðarness frá aldamótunum 1200. Þar er kveðið á …
Veiði Suðurland
Stangveiði á Suðurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og veiðivötn. Laxveiði Suðurlandi Brúará – Hagós Brúará – …
Þorlákshöfn
Þorlákshöfn er kauptún á Hafnarnesi, vestan ósa Ölfusár. Þar er eina góða höfnin á Suðurlandi frá Grindavík að Höfn í Hornafirði. Laxdælasaga segir f…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )