Oddakirkja er í Oddaprestakalli í Rangárvallaprófastsdæmi. Oddi hefur verið kirkjustaður frá upphafi . kirkjan var byggð fyrir ábendingu loftsýnar. Menn sáust svífa um loftið og varpa niður spjóti og kirkjan var byggð, þar sem það stakkst í jörðu. Í katólskum sið var hún helguð heilögum Nikulási.
Núverandi kirkja var byggð 1924. Hún tekur 100 manns í sæti. Jón og Gréta Björnsson endurbættu og máluðu kirkjuna 1953 og síðan var hún endurvígð. Silfurkaleikur í kirkjunni er talinn vera frá því um 1300.