Melgraseyrarkirkja er í Vatnsfjarðarprestakalli í Ísafjarðarprófastsdæmi. Melgraseyri er bær og á utanverðri Langadalsströnd. Þar er útkirkja frá Vatnsfirði.
Núverandi kirkja var vígð 10. september 1972. Hún tekur 60-70 manns í sæti. Bænhús var þar öldum saman og hið síðasta tók af í ofsaveðri 1966. Prestar í Kirkjubólsþingum sátu þar um skeið.