Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Meðalfellsvatn

Meðalfellsvatn er í Kjós. Áin Bugða fellur úr því í Laxá, þannig að lax gengur upp í það. Báðar eru góðar  veiðiár. Vatnið er 2,03 km². Mesta dýpt þess er 18,5 m en yfirleitt ekki dýpra en 2-5 m. Strandlengja þess er 6 km löng. Yfirborð vatnsins er í 46 m hæð yfir sjó. Í vatninu veiðist bleikja og urriði og lax, þegar líða tekur á sumarið. Fjöldi sumarbústaða er við vatnið. Veiðimenn róma þetta svæði fyrir fegurð og friðsæld.

Fyrrum þótti fiskur mjög smár í vatninu og það benti til að það væri ofsetið. Í nokkur ár var það því grisjað með netum með þeim árangri, að fiskur varð vænni. Fiskur er nú yfirleitt af boðlegri stærð og sérstaklega getur urriðinn orðið vel vænn, eða allt að 4-5 pund þó þorrinn sé smærri, eða 1-2 pund.

Bleikjan er mikið beggja vegna pundsins, en stærri og smærri veiðast í bland. Mest hafa rétt yfir 100 laxar veiðst í vatninu á einu sumri og allt ofan í 10 stykki. Margir telja þó að mun fleiri veiðist heldur en skýrslur segja, því margir, sem veiða frá sumarbústöðunum gefa ekki upp nákvæmar aflaskýrslur.

Veiðitími hefst kl. 7.00 og honum lýkur kl. 22.00
Frá byrjun 1. apríl og fram til 20. september.
Allt löglegt agn: Fluga, maðkur og spónn.

Fishing card only costs 9.900 ISK.

Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 40 km.

Myndasafn

Í grennd

Hvalfjörður
Hinn fagri Hvalfjörður gengur inn úr Faxaflóa milli Akraness og Kjalarness. Hann er u.þ.b. 30 km   langur, 4-5 km breiður og víðast alldjúpur. Mesta d…
Hvammsvík
Hvammsvík er jörð í Kjósarhreppi. Hvammur er landnámsjörð samkvæmt Landnámabók en Hvammsvíkur er fyrst getið sem hjáleigu á sautjándu öld. Breski og b…
Veiði Vesturland
Stangveiði á Vesturlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn. Laxveiði Vesturlandi …
Veiðikortið
Veiðikortið 2021 til sölu.

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )