Þessi á á norðvestanverðu Langanesi er í u.þ.b. 10 mínútna akstursfjarlægð frá Þórshöfn. Hún er veidd með fjórum stöngum og vænn birtingur eða sjóbleikja dregin á land. Ósinn er fremur lítill en gjöfull og ofan hans rennur áin um engjar og tún á tveggja kílómetra kafla.
Fuglalíf er áhugavert og umhverfið er vel fallið til skemmtilegra gönguferða. Veiðimönnum er heimilt að taka út veiðistundirnar 12 hvenær sem er sólarhringsins, þannig að þeir geta notið ógleymanlegrar stemmningar miðnætursólarinnar, ef þeir kjósa.
Fjórar stangir eru leyfðar á tveimur veiðisvæðum ofan og neðan sjávarlóns.