Hún fellur til sjávar í Skagafjörð, nánast beint austur af Laxá á Refasveit, sem fellur til Húnaflóa. Laxá er tveggja stanga á, geysifalleg, afar löng og nær veiðisvæðið langt inn á fjöll.
Laxá má muna sinn fífil fegri, veiði í henni hefur dalað úr 2-300 fiskum í bestu árum niður í fáeina tugi síðustu sumur. Til allrar hamingju fyrir veiðimenn gengur þó góður slatti af vænni sjóbleikju í ánna og bjargar það mörgum veiðitúrnum. Landeigendur sjá sjálfir um veiðileyfin, sumir nýta sjálfir, en aðrir selja frá sér.