Laugadælahólmi er merkasta eyjan í Ölfusá, 20 km frá sjó. Síðustu aldirnar hefur æðarfugl orpið þar (árið 1961 = 330 hreiður), en minkur hefur eytt varpinu verulega.
Mikil laxveiði er í Ölfusá. Þar var bæði veitt á stöng og í lagnet, en árið 2007 var hætt að leggja lagnet til að auka stangveiði, það stóð ekki lengi nú eru lagnetin úti við Selfoss. Selir eru í ósunum og stöku dýr hafa sézt upp undir Faxa í Tungufljóti og Gullfossi í Hvítá. Í ofanverðum ósunum eru margar eyjar með varpi.