Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Lárós

laros

Lárós er 1,6 km² lón, sem gengur inn úr Látravík í Eyrarsveit vestan við fjallið Stöð. Mesta dýpi þess er 11 m Ósinn er útrennsli úr grunnum vaðli, Lárvaðli, sem þornar að mestu um fjöru. Þarna var byggt upp fiskeldi á vegum Láróss hf., sem hefur gefið góða raun.

Framkvæmdir við stöðina hófust 1965. Vatnsuppistaðan í tengslum við stöðina er 160 ha og þar er meðaldýpið 2½-3 m. Mikið var af 1-6 punda bleikju í lóninu. Stutt er til gistingar í Grundarfirði. Þjóðvegurinn er sunnan við lónið og þar er var bezta veiðivonin. Ekki er seld veiðileyfi í Lárós lengur. Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 223 km um Hvalfjarðargöng.

Myndasafn

Í grennd

Grundarfjörður
Grundarfjörður er sérlega fagur fjörður, umluktur fjöllum á þrjá vegu, sem eiga vart sinn líkan að fjölbreytni, og er þar Kirkjufell mest áberandi. Sa…
Veiði Vesturland
Stangveiði á Vesturlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn. Laxveiði Vesturlandi …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )