Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Landakirkja

Landakirkja er í Vestmannaeyjaprestakalli í Kjalarnesprófastsdæmi. Hún var byggð úr steini á árunum   1774-1778 og er þarmeð þriðja elzta steinkirkjan á Íslandi á eftir Viðeyjarkirkju frá 1759 og Dómkirkjunni á Hólum frá 1763.
Arkitekt kirkjunnar var Georg David Anthon, sem var aðstoðarmaður og lærisveinn Niels (Nicolai) Eigtveds, sem var kunnast arkitekt og hallar smiður Dana á þeim tíma. Margt dýrmætra muna er í kirkjunni, s.s. hljómfagrar kirkjuklukkur frá 1619 og 1743, 16 arma ljósahjálm frá 1662 og altarisstjaka frá 1642. Landakirkja þykir góð til áheita.

Myndasafn

Í grennd

Kirkjur á Suðurlandi
Listi yfir flestar kirkjur landshlutans Akureyjarkirkja Árbæjarkirkja Ásólfsskálakirkja Ásólfsskáli Bræðratungukirkja …
Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjar - perlan í hafinu - eru eyjaklasi suður af landinu. Eyjarnar eru 15 eða 16. Surtsey er syðst en Elliðaey nyrzt. Surtsey varð til i mik…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )