Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Kristínartindar

Kristínartindar eru nokkurs konar baksvið þess hluta Skaftafellsþjóðgarðsins, sem er íslaus. Þeir mynda   hálfhring um fornan gíg, sem opnast til vesturs og er jafnframt efstu drög Bæjargils. Hæsti tindur þeirra rís 1126 m yfir sjó og þaðan er frábært útsýni á góðum degi. Norðan tindanna er þverhnípi, þannig að gæta verður fyllstu varúðar í göngu á tindinn. Skörðin eru örmjór kambur, sem liggur í norðaustur frá efsta tindi til Skarðatinds (1385 m).

Ein margra gönguleiða frá tjaldstæðinu í Skaftafelli liggur upp brekkurnar um Hrútagil að Sjónarnípu. Þaðan liggur leiðin upp að 650 m hæðarpunktinum í hlíðum Kristínartinda suðaustanverðra og síðan í suðurhlíðunum inn í gígleifarnar og upp á 706 m punktinn og þá er komið á endastöð, kjósi fólk ekki að ganga á tindinn. Leiðin til baka liggur um Skorarbrýr, niður á 610 m útsýnishólinn (610 m) á leiðinni, og þaðan á Skerhól (526 m). Næsti áfangi á niðurleið er Sjónarsker áður en haldið er niður með Eystragili eða að Svartafossi og endað á tjaldstæðinu. Svo er náttúrulega hægt að snúa þessum hring við. Göngutíminn er 5½ – 7 klst.

Myndasafn

Í grennd

Þjóðgarðurinn í Skaftafelli
Þjóðgarðurinn í Skaftafelli (1967, stækkaður 1984 og stækkaður enn 2004) og nágrenni geymir mestu náttúruperlur Íslands. Íslenskir og erlendir ferðal…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )