Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Kolbeinsstaðakirkja

Kolbeinsstaðakirkja er í Staðarstaðarprestakalli í Snæfells- og Dalaprófastsdæmi. Hún var byggð úr  1933 og vígð 1934. Þórarinn Ólafsson var yfirsmiður. Meðal góðra gripa kirkjunnar er silfurkaleikur frá 14.-15. öld, altaristafla eftir Brynjólf Þórðarson, listmálara, patína og brauðöskjur frá 1725, gotneskt Kristslíkneski úr kopar og forna koparstjakar. Skírnarskálin er frá 1732 og útskorinn umbúnaður hennar er eftir Friðrik Friðleifsson

Katólsku kirkjurnar voru helgaðar Guði, Maríu guðsmóður, Pétri postula, Magnúsi eyjajarli, heilögum Nikulási, heilögum Dóminíkusi og öllum heilögum mönnum. Kolbeinsstaðir voru prestssetur til 1645, þegar sóknin var lögð til Hítarnesþinga og síðar Sölulholtsprestakalls.

Myndasafn

Í grennd

Kirkjur á Íslandi
Það er erfitt að draga skörp landfræðileg skil milli kirkna, kirkjustaða og sögu kristninnar á milli. Á þessum vef fer skiptingin ekki eftir prófastsd…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )