Kolbeinsstaðakirkja er í Staðarstaðarprestakalli í Snæfells- og Dalaprófastsdæmi. Hún var byggð úr 1933 og vígð 1934. Þórarinn Ólafsson var yfirsmiður. Meðal góðra gripa kirkjunnar er silfurkaleikur frá 14.-15. öld, altaristafla eftir Brynjólf Þórðarson, listmálara, patína og brauðöskjur frá 1725, gotneskt Kristslíkneski úr kopar og forna koparstjakar. Skírnarskálin er frá 1732 og útskorinn umbúnaður hennar er eftir Friðrik Friðleifsson
Katólsku kirkjurnar voru helgaðar Guði, Maríu guðsmóður, Pétri postula, Magnúsi eyjajarli, heilögum Nikulási, heilögum Dóminíkusi og öllum heilögum mönnum. Kolbeinsstaðir voru prestssetur til 1645, þegar sóknin var lögð til Hítarnesþinga og síðar Sölulholtsprestakalls.