Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Kirkjufell

Kirkjufell (463m) er svipfagurt fjall á norðanverðu Snæfellsnesi vestan Grundarfjarðar.    Uppgangan er fær sæmilega góðum fjallgöngumönnum, þótt dæmi séu til um, að menn hafi hrapað þar til bana.  Stöðin er vestan Kirkjufells, aðskilin af Hálsavaðli.  Bæði fjöllin eru alveg aðskilin frá fjallgarði Snæfellsness.  Tröllsleg Mýrarhyrnan (578m) er ofan Kirkjufells. 

Tilurð þessara fjalla má rekja til síðari hluta ísaldar, þegar jöklar og ár beittu öllu sínu afli við rof svæðisins.  Talið er að landslag norðanverðs Snæfellsness hafi aðallega myndast á síðastliðnum miljón árum.  Danskir sæfarar kölluðu Kirkjufell Sukkertoppen.

Stutt frá  Helgafelli er Kirkjufellsfoss sem er vert að skoða!!

Myndasafn

Í grennd

Grundarfjörður
Grundarfjörður er sérlega fagur fjörður, umluktur fjöllum á þrjá vegu, sem eiga vart sinn líkan að fjölbreytni, og er þar Kirkjufell mest áberandi. Sa…
Helgafell
Helgafell er kirkjustaður við rætur samnefnds fells í Helgafellssveit á Þórsnesi, sunnan Stykkishólms.   Kirkjan, sem nú stendur þar, var reist árið 1…
Sögustaðir Vesturlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Borgarfjörður Snæfellsnes Dalir Landshlutar Ferðavísir…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )