Kapelluhraun, líka nefndt Nýjahraun, er úfið og gróðursnautt milli Hafnarfjarðar og Staums. Talið er að það hafi runnið snemma á sögulegum tíma (1010-1020). Í hrauninu, sunnan við Reykjanesbrautina, beint á móti álverinu í Staumsvík er lítið byrgi, hlaðið úr hraungrýti, sem nefnist Kapella. Árið 1950 fannst þar við uppgröft lítið líkneski heilagrar Barböru. Talið er, að þarna hafi verið bænhús ferðamanna í kaþólskum sið. Á síðustu árum hefur mikið efni verið tekið úr hrauninu í húsgrunna og götur á Stór-Reykjavíkursvæðinu og það sléttað. Hraunhóllinn með kapellunni hefur verið látinn ósnortinn og er nú friðlýstur. Skammt sunnan hans er Straumsvík.