Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Íshólsvatn

urrid2

Íshólsvatn er suður af Mýri í Bárðardal í Suður-Þingeyjarsýslu. Það er u.þ.b. 5,2 km², 5 km langt og allt   að 39 m djúpt. Í það rennur Rangá og fleiri lækir og úr því Fiská. Skammt þaðan er Aldeyjarfoss í Skjálfandafljóti í fögrum stuðlabergsramma. Þar er allgóð silungsveiði. Fiskurinn er bæði urriði og bleikja og er aflinn af mörgum stærðum. Þar er bæði smælki og svo stórfiskar í bland.

Sögur eru til af mönnum, sem hafa fengið rífandi meðalvigt, ekki síst er þeir hafa egnt fyrir urriða á haustin í ám, sem renna í og úr vatninu eða við ósa þeirra. Stórbleikja er einnig til, en þar er það yfirleitt þetta algenga fyrirbæri, að mergð er af smárri bleikju, en nokkrar skera sig úr og taka upp á því að éta meðbræður og systur.

Aldeyjarfoss 15 km <Íshólsvatn> Kiðagil 20 km.

 

Myndasafn

Í grennd

Aldeyjarfoss
Aldeyjarfoss er meðal fegurstu fossa í Skjálfandafljóti. Hann er innrammaður í fagrar stuðlabergsmyndanir og þar er líka að finna marga skessukatla. H…
Bárðardalur
Bárðardalur er milli Fljótsheiðar í austri, Fnjóskadals í vestri og Aðaldals í norðri. Hann teygist suður að mörkum Sprengisands og Ódáðahrauns og er …
Sprengisandur
Sprengir er talinn vera suðvestan Fjórðungsvatns og vera staður, þar sem hestar sprungu á reiðinni, þegar fólk reið eins hratt og það gat til að komas…
Veiði Norðurland
Stangveiði á Norðurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn.  Laxveiði Norðurlandi vestra …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )